Laugardaginn 8. ágúst nk. mun verða haldin málstofan “Fornleifarannsóknir á Vestfjörðum” á Hrafnseyri í Arnarfirði. Málstofan hefst kl 13:00 og lýkur kl. 18:00, að henni standa Safn Jóns Sigurðssonar Hrafnseyri og Náttúrustofa Vestfjarða í samvinnu við Fjórðungssamband Vestfirðinga og Minjastofnun Íslands.
Fornleifarannsóknir hafa verið framkvæmdar á hinum ýmsu stöðum á Vestfjörðum undanfarin ár. Með málstofunni gefst Vestfirðingum sem og gestum Vestfjarða tækifæri til að fræðast um þessar rannsóknir. Málstofan fer fram í fyrirlestraformi og má sá dagskrá hennar hér fyrir neðan.
Dagskrá málstofu 8. ágúst 2015:
13:00 – 13:10 Setning málstofu
Valdimar J. Halldórsson, staðarhaldari á Hrafnseyri
13:10 – 13:30 „Landnámsbærinn á Eyri“
Guðmundur Ólafsson, fornleifafræðingur við Þjóðminjasafn Íslands
13:40 – 14:00 „Fornleifarannsóknir á Hrafnseyri og Auðkúlu“
Margrét H. Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarða
14:10 – 14:30 „Rannsóknir á sjávar- og strandminjum"
Ragnar Edwardsson, fornleifafræðingur hjá Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Vestfjörðum
14:40 – 15:00 „Söguleg samsetning þorskstofnsins“
Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, forstöðumaður Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Vestfjörðum
15:10 – 15:30 Kaffi
15:30 – 15:50 „Af starfi Fornminjafélags Súgandafjarðar og strandminjar í hættu á Vestfjörðum“.
Eyþór Eðvarðsson, formaður Fornminjafélags Súgandafjarðar.
16:00 – 16:20 „Störf minjavarðar“
Einar Ísaksson, Minjavörður Vestfjarða.
16:30 – 16:50 „Hið byggða landslag“
Gunnþóra Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Minjastofnun Íslands
17:00 – 17:10 Kaffi
17:10 – 17:30 „Samspil fornleifarannsókna, fjármagns og ferðaþjónustu“
Jón Jónsson, þjóðfræðingur hjá Fjórðungssambandi Vestfirðinga
17:40 – 18:00 „Fornleifarannsóknir í Vatnsfirði“
Karen Melik/Adolf Friðriksson, Fornleifastofnun Íslands
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is