Evrópska heiðlóutalningin verður um næstu helgi og eru allir hvattir til að vera með. Upplýsingarnar frá dögunum í kring eru líka verðmætar.
Upplýsingar um hvar, hvenær og hversu margar lóur sáust er allt sem þarf. Talningarnar þurfa ekki að vera merkilegar. Lóur sem menn sáu á rauðu ljósi á umferðareyjum komu t.d. sterkar inn í síðustu talningu 2008. Við reynum að telja það sem hægt er og slá á restina til að áætla lágmarksfjölda sem er á landinu á þessum tíma.
Athugið að það er líka mjög mikilvægt að frétta af svæðum þar sem engar lóur sáust. Það hjálpar til við að sjá hver dreifingin er yfir landið. Í síðustu talningu var t.d. kominn vetur um norðanvert landið og stikkprufur héðan og þaðan bentu til að þær lóur sem voru eftir á landinu væru einkum hér fyrir sunnan og vestan. Það bendir fátt til að við upplifum slíkan lúxus í ár.
Þegar talið er á landi (þ.e. ekki í fjörum), gjarnan í bíltúrum, er gott að skrá hversu margir kílómetrar voru eknir og hversu langt frá vegi séðar lóur voru. Þá má slá á lágmarksþéttleika.
Tómas Gunnarsson mun svo taka saman tölurnar og koma upplýsingunum til þeirra sem halda utan um heildartalninguna og láta vita um niðurstöður (tomas@hi.is www.sud.hi.is http://uni.hi.is/tomas).
Náttúrustofa Vestfjarða | Aðalstræti 12 | 415 Bolungarvík | kt 610397 2209 | sími: 456 7005 | netfang: nave [hjá] nave.is